Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, maí 25

Staupasteinn

Æðislegur þáttur og minn uppáhalds – og sýndur hvern dag mér til trausts og halds. Minnir mig á gamla daga í Breiðholtinu, sítt hár að aftanverðu og bleika stingusófann.

Hvern dag klukkan 17.50 sýnir Skjár 1 besta þáttinn á Íslandi í dag - Staupastein eða Cheers. Gamlir vinir sitja við barborðið eða þjóna þeim sem þar sitja og hafa ekkert breyst á 15 eða 20 árum! Sam, Diane, Coach, Norm (Norm!), Cliff, Carla og nú nýlega Frasier sem ungur biðill. Ennþá glaður enda Lillith hvergi sjáanleg enn sem komið er. Woody á leið inn, Coach út. Rebbecca inn, Diane út.

Man ennþá eftir þættinum þegar Norm og Cliff veðjuðu hvað væru margar parketflísar í gólfi Boston Garðsins. Lögðust loks á fjórar og byrjuðu að telja. Rugluðust í kringum 9.000 og byrjuðu upp á nýtt. Snilld.

Svolítið fyndið samt, að af öllum þáttum á öllum stöðvum í dag skuli enginn standast gömlu ræmunni snúninginn. Raunar-veruleikaþættir, fimm útgáfur af sama lögguþættinum í mismunandi borgum, innlitshlátrasköll og þættir um feitlagna klaufabárða sem eiga flotta konu – duga bara ekki til að skáka gömlu snillingunum. Þannú bara svo.

Mæli með að allir taki frá stund í amstri dagsins og setjist við sjónvarpið rétt fyrir sex. Finni lyktina af kranabjórnum og Boston rykinu, sjái Coach ruglast í ríminu, hlusti á póstkorta-lífsspeki Cliffs og hrópi að sjálfsögðu NORM! – Þegar Norm gengur inn.

Cause, taking a break from all your worries, shourly would help a lot!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En hvað þá með Carlton og félaga úr Fresh Prince of Bel Air?

11:25 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Góður Maggi! Fresh Prince fylgir Boston genginu fast eftir og á skilið lítið minningarbrot.

Á danskar mánudagsminningar um Carlton, Will og stóra kallinn Phil. Ég, gamla Finluxsjónvarpið með inniloftnetinu og stór bakki af laugardagskjúklingi - og allt fyrir mig!

Hlegið í stigagöngum Skjaldarhæðar. Allavega í númer 10 og 34.

11:21 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home