Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, maí 31

Laginn

Hef víst aldrei verið mjög handlaginn og held að ég hafi reyndar áður nefnt það – og dæmi með, hér áður.

Í kvöld er ég búinn að vera baksa við að setja saman forláta kolagrill úr Rúmfatalagernum. Flott og fínt grill sýnist mér og stærra en ég hélt fyrst en það kom auðvitað í hundrað þúsund litlum smáhlutum. Hef því eytt kvöldinu í að berja þetta saman. Gekk líka brösulega í byrjun og tók smá tíma að fatta pólskar leiðbeiningarnar. Gekk þó upp á endanum.

Það bregst þó samt ekki með eitt. Alltaf skal ég týna skrúfu eða öðrum mikilvægum smáhlut sem á við gangverkið hverju sinni. Þeir hverfa bara algjörlega sporlaust. Hviss bang púff! Horfið. Eins og Baldur Brjáns eða Ingólfur púpill hans hafi komið og sveipað sprotanum. Abraka... Ótrúlegt. Nú hangir annað hjólið sem sagt hálfvegis á. En hangir!

Annars er ég ansi slakur yfir því að vera svona óhandlaginn. Kannski einum of. Ætti líklega að taka það meira nærri mér. Held að ég hafi bara gefist upp á því einhvern tímann í lærdómskúrvunni. Áttað mig á takmörkunum mínum. Þýðir heldur ekkert að vera að stressa sig á þessu. Ég er örugglega ágætur í einhverju öðru. Maður verður bara að brosa yfir þessu.

Ég er kannski ekki handlaginn en laginn við að henda að því gaman. Það hlýtur að vera ágætt líka. Svona næst best.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Líka laginn við að neita að taka þátt í iðnbyltingunni.
Allar þessar nýju uppfinningar og framfarir eins og gasgrill, örbylgjupopp og digital sjónvarp eru hvort sem er bara tískubóla sem springur á endanum.

11:13 f.h.

 
Blogger Darri said...

Iðnbylting piðnbylting! Iss.

Ok ég er kannski stundum seinn til - en þú hefur greinilega aldrei smakkað poppið úr Drangapottinum!

Sumt verður aldrei betra - en best!

11:29 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Þér hefur nú farið mikið fram síðan þú misþyrmdir bleika sófanum......enda ekki hægt annað:)

G.

3:49 e.h.

 
Blogger Darri said...

Tjaaa sófinn hélt allavega eftir "misþyrminguna"! :)

En gott ef það var ekki eitthvað veðmál í gangi... gott ef ég hafi ekki unnið einhverja bjóra... gott ef það var ekki lögfræðingur sem hóf veðmálið... gott ef ég hef nokkuð séð einn einasta bjór ennþá... gott ef sönnunargögnin hafi ekki horfið með þeim bleika á haugana!

Andsk. Og naglinn með.

Rooosa nagli jafnvel!

12:27 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home