Óskar
Jón Ársæll dró í gærkvöld upp mynd af einstaklingum með hindranir í lífsfarteskinu. Óskar var aðalleikarinn í þessum besta raunveruleikaþætti landsins og fór á kostum. Klæddur eins og “milljón dollarar” sýndi hann þokka sem líklega er ómetanlegur.
Óskar sýndi í gærkvöld að hann er bæði leikinn með orðin og fimur á pennann. Listamaður í breiðustu merkingu þess orðs – og virðist semja vel við lífið. Með tískuvitund á há-stigi, stígur hann trylltan dans á borði ef augnablikið býður. Leikur á lífið og heilsar þeim látnu
Óskar og félagar hans eru fólk á jaðri samfélagsins – einfaldar sálir í flóknum heimi. Slíkur heimur virðist stundum ekki passa þeim en ég held að því sé jafnvel öfugt farið. Heimurinn er ekki tilbúinn fyrir fólk eins og Óskar. Sem fetar í engin fótspor önnur en þau sem örlögin bjóða honum.
Hann virðist hinsvegar bjóða sömu örlögum byrginn.

2 Comments:
íhíhíhíhíhíh
8:54 e.h.
Velkominn heim!
9:04 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home