Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, apríl 22



Veit ekki neitt

Stundum veit maður ekki neitt - lítið allavega. En framkvæmir samt. Því stundum verður maður bara, stundum á maður.

Ég vissi t.d. lítið sem ekkert um börn en gerði það bara samt. Eignaðist svona barn. Og það gengur bara vel. Held ég. Samt veit ég ekkert mikið hvað ég er að gera. Þannig séð. Maður gerir bara. Sitt besta og stundum kannski bara það sem maður getur.

Við erum meðvituð um það að það þurfi að aga guttann. Leiðbeina, banna og sýna. Aðferðirnar eru þó heimatilbúnar að mestu eða byggðar á innsæi, aðstæðum – og stöku glettu af SúperNanny. Lúkas Emil er prakkari sem er mjög skemmtilegt en gaman getur auðvitað kárnað líka. Hann hendir t.d. stundum matnum á gólfið, endurraðar geisladiskunum á gólfinu og rýfur loftnetssnúruna iðulega úr veggnum.

Það á að aga – en hvenær á að byrja?

Hann er 13 og hálfs mánaða og við erum aðeins byrjuð. Byrstum okkur, tökum í höndina, færum okkur í augnhæð, byrstum okkur. Ó,ó. Nei, nei. Máeggi. Og það allt. Og. Og það hefur engin áhrif á litla manninn. Tja, önnur en þau að hann flissar með öllu andlitinu og augun segja manni að deginum hafi verið bjargað. Stundum á ég sjálfur bágt með brosið – en reyni að halda aftur af viprunum.

Hann stjórnar nefnilega dansinum – svona stundum. Og maður dansar með því hann er líka góður. Og forvitinn og kátur og blíður. Segir bara papa, papa, papa og gefur knús. Þakkar fyrir dansinn. Og hvað getur maður þá gert? Annað en vonað að hann sé of ungur til að spila með mann. Of ungur til að vita að hann sé að stjórna dansinum.

Og reynt að læra sporin í leiðinni.

3 Comments:

Blogger Darri said...

Nettur :)

9:39 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er myndarmaður sem þú átt þarna! Kannast við þetta viðbragðsleysi við "ó,ó"-inu. Mín gerir það sama. Hún heldur að þetta sé leikur. Maður segir "nei nei, bannað".. þá stoppar hún, horfir á mann, hristir höfuðið og fer svo að gera sama hlutinn aftur!
Kv. Rut

10:22 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það!

Já einmitt. Minn engist um af hlátri! Held þau séu bara að spila með okkur.

dj

5:37 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home