Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, maí 23

Með?

Það hlýtur að vera erfitt að vera framsóknarmaður í dag. Að vera í forsæti en horfa um leið á flokkinn sinn fjara út. Hverfa. Gufa upp hægt og rólega. Framsókn er með lykilinn að útidyrahurð allra landsmanna um hálsinn - en hann virðist svo þungur að hann dregur allt fylgi þess niður að jörðu. Framsókn verður Afturför.

Í borginni hefur flokkurinn auglýst líklega allavega jafnmikið og duglega og stóru flokkarnir tveir. D með um 47% fylgi, S með um 30% fylgi og Framsókn þó aðeins með um 3% og engan mann inni! Auglýsingarnar verða enda hjákátlegri eftir því sem nær dregur kosningum – þar sem Bé listinn lofar stórum peningagjöfum, göng í gegnum Öskjuhlíðina o.s.frv.. – með lokaorðunum Ertu með?

Með hverju? Með hvert?? Framsókn burðast, með miklum tilkostnaði, við að ná inn einum einasta manni og spyrja kjósendur hvort við séum memm, nei meina með? Þegar rétta spurningin er auðvitað hvort Framsókn sé með yfirhöfuð.

Framsókn er gamaldags afl í íslenskum stjórnmálum með sýn morgundagsins í baksýnisspeglinum. Að mínu mati. Embættismenn frekar en hugsjónafólk. Og það er líklega ekki við Björn Inga að sakast. Hann er eflaust góður og gegn náungi, ungur maður í framsókn.


Flokkurinn er það bara ekki.

2 Comments:

Blogger BJ said...

þú hefur auðvitað kostið vitlaust eins og venjulega.... Vonandi samt ekki eins svakalega vitlaust & í þingkostningunum seinustu.

10:35 f.h.

 
Blogger Darri said...

Tja... vitlaust og ekki vitlaust. Kýs nú ekki alltaf það sama - svo það getur ekki verið vitlaust í hvert skipti.

Val okkar Gunna síðustu þingkosningar kom þér þó upp á svið kallinn minn ;-)

10:56 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home