Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, maí 11

Sjónvarp kvöldsins

Búinn að vera veikur í dag og þungur eftir því. Reyndar bara í hausnum. Horfði svo sjónvarpsdagskrána og sá ýmislegt sem létti á mér.


Í Íslandi í dag var innlit til Hrafns Gunnlaugssonar í húsið hans við Reykjavíkurfjöruna. Hrafn nettur á því. Skemmtilega einkennilegur, líklega sérvitur. Greinilegur fagmaður.

Í Kastljósi var viðtal við 104 ára konu í Hafnarfirðinum sem kannaðist nú ekki við það að hafa dansað á 103 ára afmælinu sínu. Mundi samt eftir einhverjum látum.

Silvía fór enskumælandi af landi brott. Eins gott að stutt er í keppnina. Held að Silvía ríghaldi í kúlið og góðvilja þjóðarinnar.

Einhver kór í slæmum fötum í slæmum litum söng kór-útgáfu af Nínu eftir Eyjólf Kristjáns. Veit ekki. Var bara eitthvað fyndið við það.

Haukarnir mínir unnu deildarbikar – sem er einhver nýr bikar – í beinni. Unnu Fylki – sem er líka nýtt handboltalið – í tvíframlengdum leik. Munaði engu að þetta færi í vítakeppni. Viðtöl við glaðbeitta eftir leik, klisjuspurningar, klisjusvör. Siggi Sveins sagði eitthvað fyndið. Heyrði samt ekki hvað hann sagði.

Dúkkulísurnar sungu gamalt Blondie lag. Gott hjá þeim. ,,Ótrúúúleeega leeeeiiiðinleg”. Smá attitude frá Egilsstöðum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home