Frí
Fer í frí frá og með föstudeginum. Sumarfrí sem rennur inn í feðraorlof sem telur í heildina um 7 vikur. Vá. Það liggur við að ég fái samviskubit. Liggur við.
Stefni á stefnuleysi í fríinu mínu, svona að mestu. Ætla að ráfa um göturnar með barnavagn, svona að mestu. Hvíla mig líka og endurnæra. Átta mig, hugsa og skipuleggja. Mála kannski skápinn. Slá grasið.
Mest ætla ég þó að vera til staðar. Fyrir guttann sem fór í klippingu í gær og eltist um 2 ár. Slétt. Ég horfði á hann í hálftíma eftir á og hugsaði með sjálfum mér, hver ert þú eiginlega? Hvað varð um litla guttann minn? Tíminn líður hratt í hárfínum sveiflum skæranna.
Ætla að vera til staðar fyrir stemninguna hverju sinni. Hvort sem það er að hlaupa í garðinum, keyra um í vagninum, borða ís eða háma í sig köku á Súfistanum. Mikil stemning mun ríkja fyrir því síðastnefnda reikna ég með.
Ætla í frí fyrir mig, fyrir aðra og fyrir stóra guttann. Vona bara að hann sé ekki orðinn of stór til að hanga með pabba sínum!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home