Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, júní 19

Og þetta er nú bara handbolti!

Kátt í höllinni á laugardaginn. Trú, von og kærleikur. Landsleikur í handbolta – en samt eitthvað miklu meira. 62 ára lýðveldisafmæli og það var líkt og Svíþjóð hefði verið herraþjóðin, ekki Danmörk. Herraþjóð handboltans kannski.

Áratuga-minnimáttarkennd gagnvart þeim gulu. Horft til þeirra helstu stjarna með lotningu þess sem getur ekki annað en hrifist af yfirburðum illskeytts mótherjans. Þeirra sem heldur manni í handbolta-gíslingu. Stokkhólmsheilkennið.

Hvert íslenskt mannsbarn vissi að Mats Wilander var póstburðarmaður á milli þess sem hann jarðaði okkar bláu menn - heldur klunnalega af línunni. Hefði heldur ekki komið á óvart ef stytta af Staffan hefði á sínum tíma verið reist í Reykjavík. Þar sem ýmist blómum eða eggjum væri kastað í af stuttu færi undir dögun á djammdögum. Við hæfi að báðir þessir herramenn voru viðstaddir.

Í Fjallkonunni slógu 300.000 hjörtu í fullkomnum takti og hún hóf raust við Lofsönginn fullkomlega falskt og taktlaust. Klóraði sér í höfðinu yfir erfiðri laglínunni og brosti útum. Tungu- og raddbandabrjótur. Allt eins og það átti að vera. Allir falskir. Saman.

Grýluveiðar framundan.

Heldri menn og mikilvægir, töffarar og feimið fólk. Forseti og egypsk demantafrú. Lyftu fána, slóu í lófa og kölluðu nafnið. Aftur og aftur. Stóðu upp og æptu á dómara. Hvöttu þá bláu. 1944. Áfram Ísland. Fullkomið ef þeir gulu hefðu verið rauðir og hvítir. Við hæfi. Kannski.

3.000 íslenskir áhorfendur voru fulltrúar allra hinna. Hver maður 100 manna maki í fagni, hvatningu og stressi. 10x100 neglur nagaðar. Allt Ísland inni í einni Laugardalshöll.

Unnum.

Töpuðum reyndar en unnum samt. Sætasta tap sögunnar síðan Vilhjálmur stökk 3 svar ofan í ástralskan sandkassa. Fjallkonan sprakk og hjörtun sem voru eitt splundruðust aftur í stolta einstaklinga sem voru Íslenskir. Með stóru í-i þrátt fyrir "sk" regluna. Undantekningin sem sannaði hana.

Árás. Ekki á Svíana heldur lögguna. Sá Fúsa og Guðjón Val taka strauið að prúðbúinni löggu og Fúsi stökk á hana. Faðmaði hana að sér. 110 kíló í fangið og hatturinn fauk af. Löggan brosti og Fúsi slapp með áminningu. Leikurinn tapaður og fólkið með. Tapaði sér í sigurvímu.

Þegar allir voru einn og einn var sigurvegari.

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

S.s. gaman á leiknum?

G.

9:27 e.h.

 
Blogger Darri said...

Já, þú meinar það?! Jú, jú það var alveg ágætt.

9:37 f.h.

 
Blogger BJ said...

10*100 = 1000 neglur... I dont get it... Ekki vissi ég að wislander hafi verið póstburaðmaður, hélt hann hefði verið atvinnumaður í sínu fagi í þýskalandi eða spáni. . Hvaaaa ...

Ekki sló nú hjarta mitt í fullkomnum takt, nema aðeins við tóna metallica á Ímóla... Sá þetta ekki fyrr en í gær í sunnudagsfréttum RUV .

'Sk' reglann íhíhíhíhíh, hvað er nú það. Eitthvað ofan á pasta ??

2:36 e.h.

 
Blogger Darri said...

Neeeeeeeeei mar :)

Kann ekki að útskýra þetta með neglurnar og get fyrirgefið þér með Wislander og póstinn. En sk reglan maður! Ussuss...

Annars get ég lítið útskýrt þessi skrif mín um leikinn. Þetta bara kom...

9:39 e.h.

 
Blogger BJ said...

" Þetta bara kom "

Er þetta eitthvað sem Lúkas segir við þig reglulega, "þetta bara kom"


:- )

12:21 e.h.

 
Blogger Darri said...

Tja... nú skil ég þig ekki Bjeggi min ven.

1:59 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Sure U do min gamle venn.

8:33 f.h.

 
Blogger Darri said...

Neibb. Þú ert mér enn hulin ráðgáta stundum. Men det er i orden ;-

1:32 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

BJ

Biddu , hefur þú aldrei verið lítill strákur ? ?? Ert þú ekki pabbinn í þessu partýji,! Eða hvað ? .. Allavega fattaði ég þetta sko strax . sko sko Din gamle swinger mand ! ! ! ! !

4:58 f.h.

 
Blogger Darri said...

Jaaaaaaaaaaaaaá! Got it. Tók smá tíma enda hrekklaus með endemum.

Minn gutti kann heldur ekki segja annað en "bolti" ! :)

10:59 f.h.

 
Blogger BJ said...

Va Bene ! !

5:22 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home