Rosalega tékkneskur
Fyrsti dagur í fríi og hann hófst með hefðbundnum morgunverkum. Ég lagaði hafragraut og Lúkas Emil náði í ruggustólinn sinn. Borðuðum saman. Hellti síðan upp á kaffi og gerði tilraun til að rýna í Fréttablaðið, lesa um Framsóknarfarsann o.s.frv.
Friðurinn þó fljótlega úti því Lúkas hafði önnur áform. Hingað til hefur honum þótt skemmtilegast að fikta og pota í tæki heimilisins. Ýta á takka videotækisins og slökkva á græjunum. Veit ekki hvaðan hann hefur þennan tækniáhuga. Nú tók hann þó í hendina á pabba sínum og leiddi hann fram á gang og skipaði niður á 4 fætur. Lítill mjúkur fótboti lá þar undir borði og ég átti að ná í hann. Honum langaði í fótbolta.
Ég, auðvitað yfir mig ánægður með þennan skyndilega áhuga á íþróttinni, náði í boltann og við tókum leik. Og ég sá strax mér til mikillar gleði að drengurinn er auðvitað geysilegt efni. Það var ljós strax á fyrstu spyrnu þegar hann gaf boltann glæsilega á pabba sinn með hælspyrnu. Og hann sparkar ekki bara með tánni tilviljanakennt, heldur setur fótinn ofan á boltann og dregur hann með sér. Greinileg merki um góða tækni – eða eins og einn gamall kunningi sagði einu sinni: Alveg rosalega tékkneskur leikmaður.
Andartökum síðar tók hann reyndar boltann og beit í hann og kastaði. Kannski merki um að þetta hafi allt sama verið tilviljun. ... Nei, nei önsum þessu ekki. Á morgun æfum við skallaboltana og fyrirgjafir.
3 dagar í HM.

3 Comments:
Verður líka að kenna honum allt um það hvernig á ekki að fá gul spjöld.... Svo maður tali nú ekki um "pendúlinn" marg marg marg marg víðfræga..
híhh híhh
3:07 e.h.
Pendúllinn. Íhíhíhíhíhíhíhí
Treystum á að hann erfi storkaleggina þá hlýtur pendúllinn að koma bara af sjálfu sér!
11:05 e.h.
"pendúllinn" íhíhíhíhí
Treystum á að hanna erfi storkaleggina, þá hlýtur pendúllinn að koma af sjálfu sér!
11:02 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home