Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júlí 5

Diego og Gary

Þegar Gary fékk náð fyrir augum argentíska guðsins.

Sá skemmtilegt viðtal Lineker við Diego um daginn. Þeir byrjuðu á því að rifja upp góðgerðarleik eldri snillinga daginn áður og Maradona sýndi Gary, með tilþrifum og handapati, hvernig hinn brasilíski Dunga hefði sparkað í hann í leiknum. Hálfhneykslaður. Ennþá 10 ára á vellinum í hverfinu. Kosið í lið eða ,,bjóðum í ykkur”. Snilld.

Gary spurði Maradona um hönd Guðs (Diego viðurkenndi reyndar ekki í mörg ár að hafa skorað með hendinni þrátt fyrir að ótal ljós- og lifandi myndir sýndu annað. Nettur). Spurði Maradona hvort honum fyndist það hafa verið óheiðarlegt og hann varð á svipinn eins og hann skildi ekki alveg spurninguna. Nei, fannst það ekki óheiðarlegt. Frekar lævíst. Þetta væri ekki óeðlilegt í Argentínu. Smá hendi milli vina, já eða óvina. Smá svindl sem var samt bara lævíst. Menn bjarga sér á fjöllum.

Áhugavert að sjá menningar- og afstöðumun af þessu tagi. Það sem fólki í norðri finnst vera epli - er appelsína í suðri. Kannski eitthvað með veðráttuna að gera. Veit ekki.

Annars góðir saman þessir tveir. Lineker, bresk háttvísin uppmáluð og Diego eins og líf og sál Argentínu holdi klædd.

Hittust á miðjunni, milliveginum. Enda báðir senterar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home