Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júlí 26

Á Spáni

Fór í frí á Spáni með Adda og Gunna. 6 dagar. Frábært frí.

Alicante, suður eftir. Villa Martin minnir mig. Hundruð hverfa, milljón hús. Húsin líkt og úr sandi, húðlituð og baige. Sandkastalar. Stundum líka eins og rjómakökuhús. Svalahandrið úr hvítum nammikrítum. Piparkökubárujárn. Svolítið tilbúið Spánn frekar en alvöru, en samt frábært. Afslöppun, sól og góður matur. Góður félagsskapur.

Ekkert sápukúludiskó og Tóti minntur á það símleiðis. Rólegt og tíminn í hægagangi. Leið ekki, heldur var bara. Ströndin, Go kart, La Manga. Innlandið á Spáni: smábæir sem minntu helst á gamla vestrið með einni breiðgötu í gegn - sem hægt var að bruna nema maður stoppaði á Saloon-inu.

30+ svæðisvörn á sólina virkaði vel. Þó kæruleysi á síðasta degi og nokkrum sókndjörfum sólargeislum hleypt í gegn. Engin rangstaða. Smá bruni samt. Kæling í sundlaug á milli leikja. Hvítvín, grill og spjall fram á nóttu. Breska slúðrið með morgunkaffinu daginn eftir. Líka stundum BBC. Home improvement- og uppboðsþættir.


Maurar og mauradráp. "Massacre" kannski meira. Carréfour, Pálmatré, Zeat bíll og fagmaðurinn sem aldrei kom. Bresk stelpa sem sagði díses og urrr og fórnaði höndum þegar ég pantaði kaffi con leche í stráhúsi við ströndina. Splitt stelpa með bjórvömb. Tjallinn spes.

Ítalskur veitingastaður: veitingastaður guðanna. Græn eðla á vegg fylgdist með rjúkandi bragðlaukum og "gourmet" á hverjum diski, gaffli, glasi. Brauði dýft í hvítlaukshaf í lokin. Upplifun með stóru U-i svo ekki sé meira sagt. Guðirnir hljóta að vera geggjaðir.


Frábær ferð og það var heitt. "En það gerði hitinn".

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

klkljk

10:02 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Rooosa rjúkandi bragðlaukar.... en það gerði hitinn.


híhh híhhh íiiiihhh

b

1:27 e.h.

 
Blogger Darri said...

rooosa

rjúkandi, frussandi, sprúðlandi bragðlaukar!

mmmmmm

2:49 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home