Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, ágúst 24

Róni

Hittum í kvöld róna, mann á götunni. Stöðvaði okkur kurteisislega og bað um klink fyrir pulsu. Gáfum honum það sem við áttum. Hann vildi þó ekki alveg sleppa okkur, vildi spjalla.

Hann drakk, hafði gert lengi. Átti móður sem gerði það líka. Var eftirlæti og helsta von fjölskyldunnar en varð að svörtum sauði. Átti líka eigin fjölskyldu en tók túra. Gekk stundum út og snéri aftur eftir sex daga. Skildi. Réði ekki við neitt en vildi svo gjarnan hætta. Bjó stundum í gömlu Alaska gróðrarstöðinni við olíulampa en nú var búið að negla fyrir – og ekkert skjól í nótt. Ætlaði að fá sér pulsu og rölta á "fund". Einu sinni enn.

Gaf honum tyggjó. Þegar hann var búinn með það setti hann það í vasann. Vildi ekki fyrir nokkurn mun henda því í götuna. Maður yrði að bera virðingu fyrir landinu sínu. Sagðist heldur aldrei henda gamalli sígarettu fyrr en hann sæi tunnu. Hann, mannlegt kusk götunnar hélt götunum hreinum. Fannst það bara frekar fallegt.


Við hinsvegar á krossgötum á Horninu. En það er önnur saga.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home