Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, maí 5

Þá allt í einu og miðri störukeppninni spólaði hún af stað að nýju og nú án fyrirvara, engrar málamiðlunar eða tillits geystist hún af stað. Glugginn sem hafði starað tómu auga á mig dáleiddi mig nú með ógreinilegum snúningi sem 2 augu mín gátu vart greint. Nú var það að gerast.

Allir mótorar voru settir í gang með hávaða orrustuþotu og ákefð nauts í miðju spænsku nautaati. Sært naut í Madrid. Samviskusöm þvottavél á Njálsgötunni. Hávaðinn og hraðinn jókst þar til mér fannst eins og vélin myndi taka á loft, fljúga út um kjallarahurðina upp yfir húsþökin í hverfinu og ég sá fyrir mér nærbuxnadans í glætu Norðurljósanna. Gott að þær voru hreinar. Heppinn.

(frh á morgun)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home