Þjóðviljinn aftur á bak
Heyrði um daginn um mann sem bar Þjóðviljann alltaf út aftur á bak. Hann gekk þ.e. hús í hús aftur á bak. Bakkandi. Dreifði og dreifði, bakkaði og bakkaði. Alveg magnað og þessi maður klárlega fagmaður samkvæmt skilgreiningunni sem sett var í loftið hérna fyrir nokkru síðan.
Veit ekki hvað manninum gekk til en hann hefur svo sannarlega náð að setja extra krydd í útburðinn hvern morgunn. Hefur líklega vakið nokkra athygli í leiðinni. Ekki létt verk að bera út aftur á bak get ég ímyndað mér. Vakna klukkan sex hvern morgunn, drífa sig út í allar árstíðir og þurfa svo í þokkabót að passa sig á ljósastaurum, pollum, bílum og öðrum gangandi vegfarendum, sem kjósa að ganga beint áfram. Tricky.
Úr því Þjóðviljinn var vinstri blað gæti þá athöfn mannsins jafnast á við það að bera Moggann út beint áfram? Kannski var það einmitt málið hjá honum. Hann sá að allir þeir sem báru út Morgunblaðið gengu beint áfram og kaus því að dreifa sínu málgagni með táknrænni yfirlýsingu sem gæti ekki misskilist. Hægri, áfram. Vinstri, aftur á bak?
Veit ekki
Kannski var þetta yfirlýsing, kannski var hann smá skrítinn, kannski var hann bara húmoristi og var í raun að gera at í okkur hinum.
Kannski

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home