Vandamál sem gufa upp
Stundum geta vandamál hreinlega gufað upp og horfið (stundum jafnvel í bókstaflegri merkingu).
Í nokkra mánuði átti ég við það vandamál að stríða að listinn á annarri hliðinni á bílnum mínum var laus. Hann stóð lítillega út í annan endann og ég var alltaf að reyna að festa hann aftur. Ok kannski ekki alltaf en við og við reyndi ég troða enda listans aftur inn en þar sem það vantaði greinilega einhverja festingu í gatið þá var þetta alltaf frekar vonlaust. En ég hélt þó áfram að prófa að troða. Svona við og við.
Um daginn fór ég svo með bílinn í bílaþvottastöð og þar sem þetta var í annað skipti sem ég geri það um ævina vissi ég vel hvernig allt virkaði. Hvar ég átti að leggja, hvert miðinn átti að fara, að ég átti að leggja spegilinn inn o.s.frv. Ég var því nokkuð brattur og átti ekki von á neinu óvæntu. Rúllukústarnir risastóru fylgdu línum bílsins gætilega, skrúbbuðu og sprautuðu og eftir nokkrar mínútur var bíllinn orðinn hreinn. Kústar og sprautur drógu sig frá til að líta á afraksturinn.
Við fyrstu sýn virtist allt vera eðlilegt en þá sá ég að það vantaði eitthvað á vinstri hliðina. ... Listann!! Sjitt, hann var dottinn af einhvers staðar í miðju skrúbbi og sprauti! Ég beygði mig niður og kíkti undir bílinn og í kring. Keyrði því næst bílinn út og gekk inn aftur til að leita. Fór út í alla króka í þessari litlu stöð og horfði meira að segja upp í loftið – veit ekki afhverju reyndar. Allt þetta rúllaði að sama brunni. Ég bara fann ekki listann! Hann var hreinlega horfinn.
En.
Þarna í bílastöðinni þá hvarf vandamálið bara. Ég þurfti ekki lengur að hafa áhyggjur af vonlaustu troði. Vandamálið gufaði upp í heitu sápukúlubaði fyrir bíla og kom ekki aftur.
Stundum er maður bara heppinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home