Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, desember 29

Auður himinn

Las um skemmtilega hugmynd á bakþönkum Fréttablaðsins í gær. Reyndar var hún eiginlega bara alveg frábær. Í stað þess að eyða hundruðum milljóna króna í rakettur var hugmyndin sú að styrkja í staðinn það hjálparstarf sem á sér stað í mið-Asíu í kjölfar hryllilegra atburða þar. Frábært.

Ég kaupi sjálfur reyndar sjaldan rakettur og því get ég trútt um talað; og jú auðvitað hef ég gaman af upplýstum eldhimni á nýársnótt; og jú auðvitað myndu hjálparsveitirnar missa af mikilvægri tekjulind en samt. Frábær hugmynd fannst mér.

Að skipta út eldhimni fyrir auðan væri skýrt og táknrænt og bara einfaldlega við hæfi akkúrat núna. Fyrir utan þessar huglægu ástæður má setja virðisstimpil á þetta og ætla að slík kúvending myndi vekja heimsathygli hið minnsta.

,,Ísland fagnar nýju ári án elda og æsings. Gefur 300 milljónir til Rauða krossins.”

Auður himinn fyrir eldhiminn.

Uss uss uss hvað þetta hljómar vel.


3 Comments:

Blogger BJ said...

Já já darri minn - enda þurfum við engar björgunarsveitir hér á landi. Hvað þá Flugbjörgunarsveitir.. Algjör óþarfi...

Bara gefa þetta allt mar.. Já já , þetta reddast bara einhvernveginn j´ajá

3:52 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ohhhh held þetta reddist nú alveg svona einu sinni.

En ok, segjum þá 50 millur á björgunarsveit fyrir nýjum tækjum og tólum og 250 millur í red kross og allir góðir!

Þú búinn að hringja? ;-)

4:02 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er sem sagt spurning um að velja milli þess að hjálpa útlendingum eða hjálpa útlendingum!

Því hvað gera íslenskar hjálparsveitirnar? Jú þær hjálpa hjálparþurfa útlendingum sem álpast upp á Íslenska hálendið í blazerjakka með kók og prins í nesti.

Útlendingarnir þarna í austri eru vissulega í meiri akút þörf fyrir hjálp núna, en voða væri það leiðinlegt ef hálendið hér á Klakanum færi að fyllast af rotnandi líkum.

En af hverju þarf að stofna sér, sínum og fingrum sínum í stórhættu bara til þess að gefa sér ástæðu til þess að hjálpa öðrum? Flugeldar eru leiðinlegir, hnuss :(

10:21 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home