Sælla að gefa en þiggja
Rakst á eftirfarandi fyrirsögn í Fréttablaðinu um daginn; “Öll gjafasæði koma frá Danmörku.”
Var þar átt við það að allt sæði sem er notað við gervifrjóvganir á Íslandi kæmu frá Danmörku. Þetta yljaði mér um föðurræturnar verð ég að viðurkenna og undirstrikaði í mínum huga það góða samband sem ríkir milli þessara tveggja landa. Þetta þýðir með öðrum orðum að út um allt land orga dönskuskotnir ormar - snáðar og meyjar á nýjan heim með dönskum hreim.
Æðislegt.
Já böndin eru sterk og söknuðurinn stundum sterkari. Stundum er erfitt að vera án. Eftir 100 ár verða Íslendingar líklega aftur komnir undir væng hafmeyjunnar í gamla lénsveldinu – og hefðir og venjur verða samstilltar á ný. Frikkadellur og kjötbollur renna í eina uppskrift, kóngafólk og íslenskar poppstjörnur renna í eina sæng og minningin um Kim Larsen og Bubba verður sameiginleg og óljós. Var Kim þessi sköllótti?
Æðislegt.
Á jólunum er nefnilega betra að gefa en þiggja : )
God jul og godt nytår.
kv,
dönskuskotinn Storkur

2 Comments:
Jólin að koma og Storkurinn talar bara um sæði! Já það eru engin tabú hjá þessum !#%&!" dönum.
Jóli.
8:53 e.h.
Enda jólin alveg æði!
9:26 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home