Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, desember 15

Ef ég nenni

Ég er að komast í jólaskap. Ef ég nenni. Er búinn að heyra uppáhaldsjólalagið mitt með Helga Björns. Held það heiti Ef ég nenni, allavega syngur hann þessa línu nokkrum sinnum – Gef henni gjöf, ef ég nenni. O.s.frv. Flott lag og Helgi er töffari. Syngur vel. Ef hann nennir því. Spurning með jólakortin. Þarf nú líklega að fara að skrifa þau bráðum. Ef ég nenni. Hlakka annars til að fara í jólafrí og setja tærnar upp í loftið. Reyndar er fríið heldur stutt þessi jólin og ég mæti aftur í vinnuna á mánudeginum.

Ef ég nenni.

5 Comments:

Blogger BJ said...

Enda ertu alltaf svo þreeeeeeyttúr ! ! ! Aaahhhhh

1:38 e.h.

 
Blogger BJ said...

Enda ertu alltaf svo þreeeeeeyttúr ! ! ! Aaahhhhh

1:38 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ekki lengur. Nenni því ekki!

3:03 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ég söng þetta fyrir hann á þjóðhátíð "ég skal gefa þér muffins......ef ég nenni"

G.

8:21 e.h.

 
Blogger Darri said...

hehehe

Ógleymanlegt móment!

9:24 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home