Haukur
Keyptum disk um daginn. Tvöfaldur diskur með gömlu bíti - gamlar glæður af vínilupptökum endurklíndar á silfraðan geisla. Gamla hljómnum viðhaldið með söngvaranum með þýðu röddina. Áreynslulaust hjal við hlustandann er óafvitandi aðalsmerki hans. Látinn sveiflukonungur lifandi sem aldrei fyrr með tæknilegri endurlífgun.
Morthens

2 Comments:
Ha!
G.
8:20 e.h.
Haukur er fagmaður!
9:25 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home