Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, maí 19

Ísland, Kína?

Mikið haft fyrir okkar elítufólki í Kína þessa dagana. Á hverjum degi eru fréttir af hverjum fundunum og hátíðarhöldum á eftir öðrum - sem Kínverjar halda okkur. Bera okkar mektarfólk á gullstólum eftir endilöngum kínverskum auðmýktarmúrnum. Áfram Ísland. Tilgangurinn víst að efla samskiptin og ekki síst viðskiptasamband þjóðanna.


En var að velta fyrir mér varðandi þetta. Ætli Kínverjar geri sér grein fyrir því að á Íslandi búa aðeins 280.000 manns – á meðan Kínamenn telja víst um einn milljarð! Ég get ímyndað mér að 280.000 sé svona svipaður fjöldi og fermdist með Xiang Pang forsætisráðherra eða svipað margir og bjuggu í blokkinni hjá Lee Chou utanríkisráðherra. Þegar hann var að alast upp.

Munurinn er bókstaflega gígantískur og maður spyr sig. Hvers konar samband ríkir milli flugunnar og fílsins? Ástleitið? Nei líklega aðeins platónsk ástin. Vona allavega að Kína fatti ekki íslenska köttinn í sekknum og hlusti áfram andaktugir á ræðurnar hans Óla. Og dáist að Dorrit.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home