Lúkas var það heillin
Þremur tímum fyrir uppkvaðningu – eftir heilabrot og millilandasímtal var tekin ákvörðun. Guttinn, snáði og snúður skyldi fá nafnið Lúkas Emil. Almenn ánægja með það meðal tengdra og ótengdra. Sumir töldu sig jafnvel hafa dreymt og séð fyrir. Á leiðinni út gólfið og út á stétt snéri pabbi sér við og spurði – hey en hvað með eftirnafn? - Johansen. Ok flott! Svaraði hann þá. Sáttur.
Við líka.

6 Comments:
Kúrbíturinn óskar Storkinum og hans ektakvinnu til hamingju með flott nafn á snáðann.
1:18 e.h.
Storkurinn þakkar Kúrbítnum kveðjuna og mælir með honum í hvert mál! : )
1:32 e.h.
Lúkas Emil er og verður fagmaður. Sé hann jafnvel í rauða búningnum með no 10 á bakinu eftir c.a. 20 ár. Og ég er ekki að tala um livrapollinn heldur miklu stærra og merkara lið.....HAUKA! Og hann verður jafnvígur á handbolta og fótbolta......og yfirburða maður í sokkabolta!
Kv.
Sojalatte.
8:29 e.h.
Já líst vel á það! Fyrsti maðurinn til að vinna ólympíugull í sokkabolta ! En reyndar með nr. 4 á bakinu.
Annars fer hann í dans ef móðir hans fær að ráða!
9:00 f.h.
íhíhíhíhíhíh´hiíhíhíhííh
10:22 f.h.
Takk fyrir það Stjáni. Rétt, Lúkas á ekki eftir að vinna handtak. : )
Annars skilst mér að Lúkas hafi verið guðspjallamaður hinn ágætasti. Læknir og hvaðeina. Ritaði víst söguna um miskunasama samverjann og hvaðeina!
9:15 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home